Viltu spara trilljón?
Persónur:
- Auðmann Davíðsson, forstjóri í íslenska fjölskyldufjármálafyrirtækinu Viltu spara trilljón?Auðmann er nýlega skriðinn á fertugsaldurinn.
- Gullveig Heiður Halldórsdóttir, kona Auðmanns, formaður stjórnar félagsins og reyndar eina manneskjan sem situr í stjórninni… Gullveig er þrítug.
- Jón, íslenskur verkamaður á sextugsaldri.
- John, sparsamur breskur verkamaður – staddur á Íslandi af óþekkri ástæðu. John er, eins og nafni sinn, á sextugsaldri.
- Ytri tími: einhvern tímann árið 2006 þegar allt lék í lyndi.
Upphaf: Leikritið hefst þar sem við erum stödd í bílskúr herra Auðmanns í Garðabæ. Fyrir ofan bílskúrinn er glæsilegt 300 fm einbýlishús. Bílskúrnum hefur verið breytt í snotra skrifstofu þar sem herra Auðmann stýrir rekstri fyrirtækisins Viltu spara trilljón?.
- Herra Auðmann: Sæll vertu og margblessaður, kæri herra John! Velkominn til okkar hérna í Viltu spara trilljón?! Auðmann Davíðsson (tekur í hönd John)! Jæja, þú sást auglýsinguna okkar á netinu ekki satt..?
- Frú Gullveig Heiður (grípur frammí fyrir manni sínum): Guð minn góður Auðmann minn, á hvorki að bjóða manninum vott né þurrt? Má bjóða þér sérmalað hnetukaffi frá Papúa Nýju Genúu herra John? Gullveig Heiður Halldórsdóttir heiti ég (og réttir fram höndina)!
- John: John Johnson heiti ég (og heilsar Gullveigu). Já þakka þér kærlega, það væri svo sem ágætt.. (fær sér sopa og felur grettu) Já, ég sá þessa auglýsingu og mig langaði að spjalla aðeins við fulltrúa fyrirtækisins..maður vill nú ávaxta spariféð sitt vel –
Herra Auðmann (skýtur inní): Jáh.. (smeðjulegt bros fylgir með)
John: - en samt örugglega – það er svo sem ekki eins og við hjónin mölum gull þannig lagað séð…
Herra Auðmann (skýtur inní): Neinei.... (gervisamúðarbros fylgir með)
John: - og fyrst ég var staddur hér á landi ákvað ég bara að kíkja inn fyrir og spjalla svona augliti til auglitis.. það er eitthvað svo mannlegt…
- Herra Auðmann: Já það er nú meira en sjálfsagt herra minn! Við fáum nú ekki mjög oft fólk í heimsókn hingað í fátæklegar vistarverur okkar…fólk er orðið svo klárt á netinu, hah!? Þú veist að við, Íslendingar, eigum heimsmetið í netnotkun??
- John: Jaaa, Íslendingar kunna vel við nýjungar..
- Herra Auðmann: ..Sko það er nú annað en með ykkur Bretana, mér skilst að þið séuð með 28,8 módem enn í notkun.. (hæðnislegt glott fylgir með)
- Frú GH (grípur inní): ..æji við förum nú ekki að segja fólki frá heimsveldinu hvernig nettengingu það eigi að nota! (sendir manni sínum afar grimman svip) Herra John, má ekki bjóða þér hérna sérbakaðar piparkökur, hráefnið sérpantað frá einstöku héraði á Indlandi, man nú ekki alveg hvað það heitir…
- John: Þakka þér kærlega frú.. (fær sér bita og felur aðra grettu)
- (xxx): óhljóð frá steinsög sem verið er að nota við hellulagningu í götunni berast inn í bílskúrinn
- Auðmann: JÁ, en þú semsagt sást auglýsinguna og…
- John: Það sem vakti áhuga minn var auðvitað vaxtaprósentan…10-prósent. Það er..ja.. gerist varla betra..? (setur upp spurnarsvip hins sauðsvarta almúga sem er ekkert sérstaklega sterkur í stærðfræðinni)
- Auðmann (með græðgissmeðjusvip): Það er hárrétt athugað hjá þér! Í rauninni skil ég ekkert í því að fleiri þínir líkar skyldu ekki vera löngu búnir að hoppa á þetta! Við erum semsagt að bjóða hérna 10-prósent vexti með viðbótargreiðslum í hliðarsjóð og með uppbótar og kjarabótar viðbót ef upphæðin fer yfir vissa upphæð mánaðarlega OG svo bjóðum við…
- John: Já 10-prósent vexti…það er …sko við konan erum nú, eins og ég sagði ekkert hátekjufólk, við höfum nú nurlað saman einhverjum 700 þúsund krónum…
- Auðmann: Já..ég ætlaði að bæta við að ef innistæðan fer yfir 10 milljónir króna bjóðum við þeim viðskiptavinum upp á Draumóraviðbótarframlagskerfið! Það virkar þannig að …
- (xxx): steinsögin vælir…
- John: - Já það er nú kannski ekki upphæð sem við sjáum alveg á næstunni þó það væri auðvitað kannski (gaman)…ja maður hefur nú heyrt að menn verði nú bara vitlausir af því að eiga of mikið af peningum. Segir ekki í Eddukvæðunum ykkar einmitt að margur verði af aurum api?
- Auðmann: Ha..aurum afi..? Hvað meinar þú eiginlega?
- John: Nei, api - Eddukvæðin ykkar, í Hávamálum..? Eða mig minnir að það hafi örugglega verið..
- Frú GH: Já jújú herra John, ég held þú hafir hárrétt fyrir þér! Maður þarf nú að muna hvað skiptir máli í lífinu! Það þýðir ekkert að ana hlaupandi að feigðarljósi!
- John: Já einmitt…en maður vill auðvitað samt ávaxta spariféð sitt..
- (xxx): hljóðið frá steinsöginni hefur færst nær og truflar John
- Auðmann: bölvaður hávaði er þetta!…já akkúrat, ávaxta féð – það er nú málið! En sem sagt þó svo þú komist ekki alveg á næstunni í Draumóraviðbótarframlagskerfið þá er SKÝR og AUGLJÓS munur á ávöxtun hjá okkur og öðrum fyrirtækjum! 10-prósent er auðvitað mjög glæsilega boðið!
- John: Já það er rétt, augljós og klár munur! En ég var nú reyndar að velta fyrir mér einu…
- Auðmann: Já endilega spyrðu að vild herra John!
- John: ..já ég var að velta fyrir mér hvaða tryggingu þið hafið?
- Auðmann: Tryggingu…? (með skilningsvana sauðssvip)
- John: Já ég á við sko…öryggi fyrir því að peningarnir glatist ekki…
- Auðmann: (setur upp gerviumhyggjubros og missir smá heh út úr sér) Já, þú meinar ef fyrirtækið fer á hausinn!!! Ja, það er nú ekki að spyrja að íhaldsseminni í ykkur Bretunum, það …
- Frú GH: ..hvaða vitleysa er þetta í þér Auðmann minn auðvitað vill maðurinn fá allar upplýsingar! Þau hjónakornin eru búin að nurla saman þónokkrum krónum með vinnusemi og dugnaði og ..og eljusemi og vill hafa fjármuni sína örugga! (þau horfast í augu og Auðmann setur upp afsökunarglott) Má ekki endilega bjóða þér meira kaffi og kökur, herra John (og brosir hringinn)! Þær borða sig ekki sjálfar!
- John: Ha, jú endilega… (og reynir að fela skelfingarsvip..)
- (xxx): steinsögin vælir…
- Auðmann: Hávaði er þetta… Já, kæri John! Sko, ég veit nú ekki hvað þú skilur mikið af þessu sem ég ætla að benda þér á en…eiginfjárstaða fyrirtækisins er afar sterk! Ég er nú stoltur af því, þó ég segi sjálfur frá, að samkvæmt uppgjöri síðasta ársfjórðungs var eiginfjárstaða fyrirtækisins..
- John: Já þakka þér fyrir (orðinn örlítið pirraður) – ef ég á að tala alveg hreint út er ég að spyrja hvað muni gerast ef..ja, svo ótrúlega mundi vilja til að fyrirtækið færi..semsagt..
- (xxx): Þessi hálfkláraða spurning hr. John fær á Auðmann og GH. GH lítur upp úr tölvuskjánum sem hún situr fyrir framan. Auðmann setur upp svip eins og hann hafi séð draug, teygir sig að kökudisknum og fær sér eina og grettir sig.
- Auðmann: Jáh, þú meinar það… (Auðmann þurrkar loksins af sér draugasvipinn og setur upp “ég hugsa djúpt og viturlega”-svip – nokkrar sekúndur líða í þögn)
- (xxx): steinsögin vælir…
- Auðmann: (ógurlegur frelsissvipur kemur á Auðmann – eins og Jesú kristur hafi birst honum) Já! Þú meinar það! Ef slík óhugsandi ólíkindi skyldu mögulega eiga sér stað er nú nefnilega ENGIN hætta fyrir dyrum! (Auðmann stendur hægt upp úr stólnum og virðist greinilega hafa fengið stórkostlega hugmynd. Hann labbar fram fyrir skrifborðið -) Ég ætla að útskýra það nákvæmlega fyrir þér, herra John, hvað mun gerast ef slíkur óhugsandi fáránleiki skyldi eiga sér stað! Hinkraðu aðeins.. (- Auðmann bregður sér út um útidyradyrnar John og GH að óvörum. GH rýkur upp úr stólnum í hálfgerðu fáti og hellir meira kaffi í bolla Johns, sem að vísu var hálffullur fyrir – hún sendir afsökunarbros til Johns. Auðmann kemur aftur inn við annan mann.)
- Jón: …ha…kaffi og kökur? Ja jújú þakka þér…það er vissulega ágætt að hvíla bakið aðeins..þessi helvítis sög fer alveg með hann…
- Auðmann: Haha! Já ég trúi því vel vinur – og ekki eru óhljóðin skárri!
- Jón: Já afsakaðu það, ég..það er ekkert verið að setja hljóðkúta á þetta fyrir mann…
- Auðmann: Já elsku kallinn minn við kvörtum nú ekki hérna, ekki stöndum við með þetta í höndunum alla daga! Gullveig mín! Stattu ekki þarna eins og þvara – bjóddu manninum sæti hérna hjá okkur og gefðu honum tíu dropa!
- Frú GH: Ja, jájá..auðvitað! Gjörðu svo vel! (GH drífur sig, enda með ofnæmi fyrir svitalykt) Hvað hérna, hvað ertu að…?
- John: (ræskir sig) já, herra Auðmann ég skil nú ekki alveg.. (og lítur til Jóns)
- Auðmann: Já það er von að þið spyrjið! Afsakaðu þetta herra John, en það er einmitt hann Jón hérna, Jónsson, sem er tryggingin þín! Hann borgar! Ríkið stendur við bakið á manni – vinum mínum í Sjálfstæðisflokknum að þa(kka)…
- Jón: ÉG? Borga…borga hvað??? Er verið að draga mann hingað inn til að borga eitthvað …?!
- GH: Ha, nei, neinei auðvitað ekki! Þetta er nú bara smá misskilningur – viltu ekki fá þér köku, hráefnið sérpantað frá Indlandi!? (Jón fær sér köku með hissasvip)
- Auðmann: Já fyrirgefðu mér Jón ég orðaði þetta ekki nógu skýrt ég ætlaði ekki að koma þér í uppnám (yfirlætislegt glott). Fyrir það fyrsta sagði ég að Ríkið stæði á bak við okkur útrásarvíkingana, hehe, ef ég leyfi mér að flokka sjálfan mig með í þann flokk! Og Ríkið ER auðvitað fólkið, eins og t.d. Jón! (snýr sér að John) Ég hugsa, herra John, þó ég segi sjálfur frá, að ekkert, og þá meina ég EKKERT fjármálafyrirtæki hafi sýnt viðskiptavini sínum jafn mikið svart á hvítu hver trygging hans er – ja eða sýnt hana bara úr holdi og blóði, ef svo má segja..hehehe…!
- Jón: BÍDDU!...
- John: Já..nú jæja..er það tilfellið, stendur ríkið undir…
- Jón: (grípur fram í fyrir nafna sínum, frekar æstur) …BÍDDU ertu að draga mig hingað inn sem einhvers konar tryggingapeningavél eða einhvern and…
- Auðmann: Neinei Jón minn – þú ert bara einn af öllum, þú ert bara einn af Ríkinu! Svo erum við líka að ræða það hérna, við John, að aðeins ef fyrirtækið fer á hausinn, sem er algerlega óhugsandi, þá – og aðeins þá myndi Ríkið tryggja innistæðu manna eins og herra Johns sem ætlar að ávaxta pundið í bókstaflegri merkingu hérna hjá okkur! (brosir að lokum smeðjulega til Johns)
- John: Já, það er nefnilega það..það er bara þannig..
- Jón: (enn svolítið æstur en líka hissa…) Bíddu…en…hvað er í þessu fyrir MIG! Ég man nú ekki eftir að hafa skrifað undir neitt…
- Auðmann: JÁ sko það sem er í þessu fyrir þig (svarar mjög ákveðið) …það …(dregur snögglega niður í honum, virðist vera í vandræðum..) hérna…
- GH: (sér vandræði í uppsiglingu, sér að sinn maður hafði ekki alveg hugsað þetta til enda) JÁ ef ég mætti grípa sko inní, það er nefnilega alveg hellingur Jón minn! Hvaðan heldur þú að brauðmolarnir komi eiginlega, mettandi og lífsbjargandi brauðmolarnir handa sauðsvörtum almúga landsins? Hinum vinnandi…já harðdugmiklu og vinnandi stéttum þjóðfélagsins? Ekki vaxa þeir á trjánum, svo mikið er víst! Það er nefnilega einkaframtakið, hinir fáu sem skara fram úr og reka gróðavænleg og framúrskarandi fyrirtæki, sem leggja til þessa brauðmola! Molarnir streyma fram, nánast í heilum brauðsneiðum, frá fjármálafyrirtækjum þessa dagana til handa þurfandi fólks í samfélaginu! Þannig styðjum við nú hvert annað Jón minn – fólkið í þessu landi! Íslandi okkar fagra!
- Jón: (nú eiginlega meira hissa en reiður) Ha..brauðmolar? Hva…brauðsneiðar? Hva..?
- John: Afsakaðu mig herra Jón, en ég þarf nú eiginleg að fara að drífa mig. Ég ætla í það minnsta að ávaxta fé mitt hjá ykkur, herra Auðmann. Ég get gengið endanlega frá þessu á netinu ekki satt?
- Auðmann: Já, jájá, einmitt fyrirgefðu! Auðvitað getur þú ekki verið hérna í allan dag, ég vildi bara sýna þér þetta svart á hvítu…jújú þú gengur bara frá þessu á netinu! Ekkert mál! (John stendur upp) Vertu blessaður og sæll, þakka kærlega fyrir viðskiptin!
- John: Já þakka þér kærlega! Vertu sæll! (takast í hendur) Vertu blessuð Gullveig, takk kærlega fyrir veitingarnar!
- Gh: Já vertu blessaður og sæll herra John! Takk kærlega fyrir innlitið!
- John: Vertu sæll, Jón, gleður mig að kynnast þér!
- Jón: Já…jájá takk…sömuleiðis (John fer út)
- Jón: Já, en eruð þið ekki að segja að ég þurfi samt kannski að borga eða..?
- Auðmann: Ja…sko en það er óhugsandi…og yrði varla nokkuð…en svona samkvæmt alþjóðalögum þá…Gullveig mín var nú líka að segja þér að…
- Jón: (hristir hausinn, hissa og þreyttur á þessu rugli) Jæja, ég get nú ekki annað sagt en að ég mótmæli því nú harðlega að borga eitthvað fyrir einhvern John eitthvað! Ekki hef ég skrifað undir neitt slíkt. En ég nenni nú ekki að hanga hérna lengur, maður verður að fara að halda áfram við þetta þarna úti…
- Auðmann: Ha, jájá vinur – ég þakka þér nú fyrir innlitið! Gangi þér allt í haginn bara!
- GH: Já gaman að ræða við svona ágætan fulltrúa hinna harðduglegu vinnandi stétta samfélagsins! Gangi þér allt sem best vinur!
- Jón: Ha, já, jájá…þakka þér…blessbless (fer út)
- Auðmann og GH í kór: Já blessbless!
- Auðmann: Jæja! Þá er maður heldur betur búinn að negla þennan! (lítur sigri hrósandi til Gullveigar)
- GH: Jú, jújú það má segja það!
ENDIR